Ofurgreind er mætt. Hvernig ætlar þú að byggja?

Gervigreind breytir ekki bara því hvað er hægt að framkvæma, heldur hversu hratt og örugglega. Ég hjálpa fólki sem byggir upp fyrirtæki að sjá möguleikana og koma þeim í verk.

Möguleikarnir ↓

Möguleikarnir

Ofurgreind

Greind á við okkar færustu sérfræðinga er orðin jafn aðgengileg og rafmagn. Nú skiptir mestu hvernig þú beitir henni.

Erindrekar

Gervigreind sem lætur sér ekki nægja að svara, heldur framkvæmir. Erindrekar taka að sér heilu verkefnin og vinna þau undir þinni stjórn.

Lítil teymi, stór verk

Tíu manna teymi getur nú áorkað því sem áður þurfti hundrað til, á broti af tímanum. Forskotið fá þau sem þora að taka upp nýjar aðferðir.

Þjónusta

  1. 01

    Stöðumat

    Hvar stendur fyrirtækið og hvar liggja stærstu tækifærin? Þú færð skýra mynd af stöðunni og forgangsraðaðan lista yfir næstu skref.

  2. 02

    Innleiðing

    Frá hugmynd í daglegan rekstur. Við veljum réttu verkfærin, setjum erindreka í vinnu og breytum vinnulaginu með teyminu þínu.

  3. 03

    Þekkingarmiðlun

    Vinnustofur og þjálfun sem gera stjórnendur og teymi sjálfbjarga. Fyrirlestrar um ofurgreind í rekstri.